24.3.2009 09:30:47 Anna María kom sá og sigraði Annað árið í röð
Íslandsmeistaramót barþjóna var haldið síðastliðin sunnudag 22. febrúar á veitingastaðnum Brodway við góðan orðstír.
Keppnirnar voru í raun þrjár, klassísk barmennska, flair-barmennska og síðast en ekki síst keppni vinnustaða sem var mjög skemmtileg og er vonandi komin til að vera. Keppt var í Fancy-drykkjum sem gefur keppandanum frjálsari hendur en þegar um aðra keppnisflokka er að ræða.
Leikar fóru þannig að íslandsmeistari í klassískri barmennsku er Anna María Pétursdóttir framreiðslumeistari og starfar hún á veitingastaðnum Lækjarbrekku.
Hún keppir fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti barþjóna sem fram fer í heimsborginni Berlín á haustmánuðum.
Annað sæti hreppti Tómas Kristjánsson Silfur Restaurant og í þriðja sæti varð Árni Gunnarsson Skíðaskálinn/Vínbarinn Sjá uppskriftir sæti 1-3 klassík
Í flair-barmennsku varð Janis Untins frá English pub sigurvegari annar varð sigurvegarinn frá 2008 Ansis Lejins og þriðji varð Ingi Þór Einarsson Café París.
Keppni veitingastaða og húsa fór á þann veg að Þorbjörn Svanþórsson frá Silfur Restaurant sigraði. Í öðru sæti varð Ronald Kopka frá veitingastaðnum Caruso og í þriðja varð Frosti Olgeirsson frá Lækjabrekku. Sjá uppskriftir sæti 1-3 keppni veitingastaða